Mohair Silk
Mohair Silk er blanda úr mohair, ull og 30% silki. Mohair er unnið úr ull af angórageitum og gefur loðna áferð. Mohair Silk er einstaklega mjúkt og létt fisband sem hentar vel eitt og sér í minni flíkur, svo sem sjöl og toppa, eða með öðru garni. Hvort sem notaður er einn þráður af Mohair Silk eða tveir þræðir saman verður útkoman unaðslega létt, mjúk og sparileg.
Fisband fyrir prjóna 3 – 5 mm.
Þyngd: 25 g lengd 259 m
Þvottaleiðbeiningar: Handþvoið við lágt hitastig, hámark 30°, kreistið vatnið úr flíkinni og leggið hana flata til þerris.
Size Guide